Sumt vekur meiri óþægindi en annað… október 8, 2009
Posted by Agnar Kristján Þorsteinsson in Fjölmiðlar, Hitt og þetta, Kvikmyndir.add a comment
Þegar þetta er ritað, þá hef ég nýlokið við hálfgert danskt kvöld í glápi . Ég hafði tekið smágláp kvöld, horft fyrst á aðra danska mynd sem ég hafði tekið upp: Bænken eða Bekkurinn sem var um ræfislfyllibyttu og endurnýjuð kynni við dóttur sína sem asnast til að flytja inn rétt hjá honum. Í þeirri mynd var innbyrt svo mikið áfengi að Leaving Las Vegas var eins og tedrykkjukvöld hjá Mokkakaffi, í samanburði og verð eiginlega að segja að manni fannst maður hálfslompaður eftir átök byttunar við að ná tappanum úr flöskunni.
Næst varð fyrir valinu þetta kvöldið, önnur dönsk mynd sem heitir Anklaget eða Ákæran, sem var nýlega sýnd á RÚV. Nokkuð sterkt drama um mann sem er kærður af dóttur sinni fyrir misnotkun, nokkuð sem maður vissi að gæti valdið óþægindum og yrði sterk ef rétt væri haldið á spöðunum. Það rættist en það var samt eitt sem situr frekar óþægilega í manni á eftir, fyrir utan myndinna. Það er kynningin á myndinni.
Ljóshærð, bráðhugguleg þulan birtist á skjánum, þuldi upp dagskrárliði sem í vændum voru og tilkynnti svo að það væri komið að sunnudagsmyndinni sem hún glaðleg, kynnti mildum og blíðum rómi að væri um ákæru vegna misnotkunar. Eins og það væri ekki eitthvað rangt við glaðværa kynningunna, þá þurfti hún endilega að toppa það með því að brosa sólskinsbrosi eftir að kynningunni lauk….HALLÓ, BROSA?????
Er ekki í lagi? Þú ert að tilkynna áhorfendum um að þeir séu að fara að horfa á mynd sem fjallar um hrikaleg erfitt efni sem vekur upp hroll hjá nær því öllum, og brosir eins og um nýjan Latabæjar-þátt sé að ræða. Hmm, kannski ekki góð samlíking en jæja, kannski eins og verið sé að fara að horfa á úrslitin í Fegurðardrottningu Íslands.
Ég veit ekki með aðra en ég er ekki viss um að ég sofni í nótt út af þessu “Cheshire cat”-brosi þulunnar, það hefur grafið sig of hrollvekjandi ofan í undirmeðvitund mína líkt og mamma Sybil forðum daga.
Sumt vekur einfaldlega upp meiri óþægindi en annað….