jump to navigation

Hvar er skaðabótamál ríkisins gegn olíufélögunum? október 27, 2009

Posted by Agnar Kristján Þorsteinsson in Uncategorized.
add a comment

Þegar ég var nýbúinn að lesa bloggfærslu þar sem Andri Geir Arnbjörnsson, spurði spurningar sem þörf er að spyrja: Hvað varð um Símapeninganna?, þá byrjaði fljótlega að bætast við önnur spurning í koli mínum.

Hvar er skaðabótamál íslenska ríkisins gegn olíusamráðsfélögunum?

Til upprifjunar þá var það svo að eftir að upp komst um olíusamráðið og úrskurð þar um, þá ætluðu margir sér að hefja málsókn gegn félögunum þremur sem stjórnað var af ósvífnum  mönnum sem einnig komu nálægt fjárfestingafélögum og bankabransanum(FL Group og Glitnir allavega).

Margir ef eki allir af þessum stjórnendum, voru þar að auki mjög svo í náðinni hjá Sjálfstæðisflokki og Framsókn sem stýrðu landinu þá,  og má reikna með að það hafi verið úrslita-faktor í því að aðeins einn maður var settur í að rannsaka  og undirbúa málsóknar gegn þeim af hálfu lögreglu, í máli sem var kallaður “stærsti þjófnaður Íslandssögunnar” á þeim tíma. Spyr mig reyndar hvort þessi orð hafi ekki orðið upphafið að stærstu og dýrustu pissukeppni bankamanna, auðmanna og annarra ribbalda um hver myndi stela stærst sé miðað við hvað gerðist næstu árin.

Á sama tíma var eytt hundruðum milljóna í málsókn gegn Baugi og ekkert til sparað enda sú viðskiptablokk ekki í náðinni hjá Sjálfstæðisflokknum. Enda sluppu þeir svo óvænt eða þannig við allt saman vegna “tæknilegra mistaka”, af hálfu rannsóknaraðila.

En hvað um það, ríki og borg, samtök, fyrirtæki og einstaklingar ætluðu sér í mál gegn olíusamráðsfélögunum og hafa allavega tvö unnist: mál einstaklings og mál eins fyrirtækis. Ekki veit ég hvað varð um hugsanlegt skaðabótamál LÍÚ svo þó þeir gætu hafa samið eitthvað á bak við tjöldin til að halda frið við félaga sína sem sumir hverjir voru nú komnir í bankaviðskipti, hver veit?

Borgin fór þó allavega í mál sem hún vann í Hæstarétti, en hvað með ríkið? Ekkert enn sem komið er, hefur birst frá þeim enda þegar maður lítur á hvaða flokkur og menn stjórnuðu í þeim ráðuneytum þar sem Landhelgisgæsla o.fl. sem töpuðu á samráðinu, þá efast maður um að ætlunin hafi verið að gera nokkuð, enda hefði það verið frekar vandræðalegt á fundum þingflokks Sjálfstæðisflokksins að ræða skaðabótamál gegn fyrirtæki stjórnað af eiginmanni fyrrum dósmmálaráðherra, en sú hafði fengið þá virðingarstöðu í lok ferils síns að slá í bjöllu á leikskólanum við Austurvöll.

Enda hvarf þetta mál inn í rykugar hillur fjármálaráðuneytis þar sem ekkert hefur gerst síðan og virðist ekkert hafa verið gert í, meðan Árni Matthíasen og Baldur Guðlaugsson réðu þar ríkjum. Maður spyr sig, þar sem nýir herrar eru komnir við völd, nýir herrar sem þurfa ekki að eyða vandræðalegum stundum fyrir framan brúnaþunga olíuforstjóra og eiginkonur þeirra á flokksfundum og kokteilboðum “crony-ismans”, sem myndu ekki styrkja prófkjör og FL-okkinn, ef farið yrði í mál, annar spurningar. Er ekki komin tími á að dusta rykið af skaðabótamálinu, ná í þýfið og skila því til baka þangað sem olíusamráðsennirnir tóku það úr rekstri samfélagsins?

Okkur vantar allavega þessa peninga.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.