jump to navigation

Um höfund

Þessi bloggari hefur óþrjótandi áhuga á kvikmyndum, sögu og stjórnmálum.Telur sig hafa fullt frelsi til að hrósa og gagnrýna hvern sem er og hvenær sem er.

En hver stendur á bak við AK-72 og hvaðan kom þetta nafn? AK-72 er sprottið upp úr fyrstu stöfum fornanfs og millinafns Agnar Kristjáns Þorsteinssonar, og fæðingarárs sem var 1972. Skammstöfunin er að sjálfsögðu kominn frá árársarriffli Kalashnikovs, AK-47(og seinni tíma útgáfu AK-74). Þó hef ég engan áhuga á að deila sömu örlögum og Kalashnikov sjálfur, safnvörður á eigin safni í Síberíu, lifandi á ölmusum bæjarbúa.

Er Reykvíkingur af Siglfirskum ættum en móðir mín náði að flýja þaðan er ég var um tveggja ára. Uppólst í Reykjavík og tel mig vera slíkan og Breiðhylting þar að auki þar sem ég bjó í fjölda ára. Hef ýmsa reynslu af skrifum og vinnu við kvikmyndaáhugamálið í gegnum tíðina, allt frá pistlaskrifum m.a. fyrir Heimildarmyndaklúbbinn Hómer sem fluttir voru í Kviku á Rás 1 og stóð að gerð tónleikamyndarinnar Sjónarhorn sem frumsýnd var á Menningarnóttu 2009. Hef einnig fitlað við handritsskrif og yfirlestur á þeim fyrir kvikmyndir, stuttmyndaþáttaka og statistahlutverk.

Ef einhver vill hafa samband, þá er netfangið mrx@mi.is

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.